Shopping security
Íslenska útgáfan
Style SONYACARDIGAN er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir XS (S) M (L) XL (XXL)
1. Yfirvídd
97 (99,5) 102 (104,5) 108,5 (110,5)
2. Lengd á bol til handveg
17 (18) 19 (20) 20,5 (20,5)
3. Lengd á ermum til handveg
40,5 (41,5) 42,5 (43) 43 (43)
Hæfni: Byrjendur og lengra komnir
Efni
Handlitað Chunky baby alpaca, 100% baby alpaca ull. Mjúkt og skemmtilegt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 100 m / 100 gr.
Chunky baby litur 1: 4 (4) 4 (5) 5 (5)
Chunky baby litur 2: 2 (2) 2 (3) 3 (3)
Chunky baby litur 3: 1 (1) 1 (1) 1 (1)
Hringprjónar 40 og 80 / 100 cm í 6 mm
Hringprjónar 40 cm í 5 mm
5 x 5 mm sokkaprjónar
Saumnál til að fela enda
Auka prjónar eða afgangsgarn til að geyma lykkjur 10 x prjónamerki
4 x tölur 3 cm
Fínn þráður og saumnál til að festa tölurnar
Prjónfest
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 16 L og prj 21 umf á prj 6 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka með útaukningu eða þar til berustykkið hefur náð réttu ummáli. Berustykkinu er deilt upp við handveg, fyrir bol og tvær ermar. Bolurinn og ermarnar eru þar eftir prjónuð aðskilin, ermarnar í hring og bolurinn fram og tilbaka. Listinn á innanverðri peysunni er prjónaður fram og tilbaka sem stroff og opnað er fyrir tölum á listanum.
Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu prjónfestu og Chunky baby .
Ships within 48 hours · Estimated delivery Sep 3 - Sep 8
US$40
Get nowSign up to your membership to get coupons up to
15%
Get nowOpportunity to enjoy order discount up to 15% off
Top-Converting Item to Boost Your Average Order